Heillastjarna.is inniheldur um 200 ókeypis leiddar hugleiðslu- og sjálfstyrkingaræfingar fyrir börn og unglinga, heimili og skóla.
Efnið er afar einfalt og aðgengilegt í notkun og er markmið þess er að stuðla að góðri andlegri líðan barna og ungmenna í gegnum einfaldar æfingar sem ættu að geta hentað öllum. Vefsíðunni er ætlað að styðja fjölskyldur og skóla í því að gera hugleiðslu að daglegri iðkun. Auk vefsíðunnar eru í boði kynningar, námskeið og einkatímar fyrir skóla, félagasamtök og einstaklinga.
Njótið vel! ♡
Námskeið fyrir fagfólk og foreldra 18. apríl 2024
Á námskeiðinu fjallar höfundur Heillastjörnuvefsins um ýmsar leiðir til að kynna hugleiðslu fyrir börnum, m.a. 7 skrefa uppbyggingu (hreyfing – leikur – teygjur – nudd – öndun – jákvæðar staðhæfingar – hugleiðsla) þar sem unnið er með mismunandi þætti sem stuðla að vellíðan og margskonar sjálfstyrkingu barnanna. Sérstök áhersla er lögð á það hvernig hægt er að tvinna hugleiðsluiðkun inn í grunnskóla- og frístundastarf barna en annað fagfólk sem starfar með börnum sem og foreldrar/forráðmenn geta einnig haft gagn af námskeiðinu. Að námskeiðinu loknu fá þátttakendur sent yfirlit yfir æfingarnar til að geta nýtt sér þær sem best í framhaldinu.
Sjá nánar um fyrirkomulagið hér:
Námskeið fyrir starfsfólk grunnskóla
Í tengslum við Heillastjörnuvefinn er boðið upp á námskeið fyrir kennara þar sem Stefanía Ólafsdóttir, höfundur Heillastjörnuefnisins og grunnskólakennari, mætir á staðinn (eða heldur fjarnámskeið fyrir skóla á landsbyggðinni) og fjallar um mismunandi leiðir til að nýta vefinn í skólastarfinu. Hluti námskeiðsins felst í fræðslu sem getur nýst kennurunum til að hlúa vel að sjálfum sér og sinni andlegu heilsu. Sjá nánar um fyrirkomulagið hér:
15 hugleiðsluflokkar – 200 hugleiðslur
Smellið á myndirnar til að nálgast hugleiðslurnar
Margþættur ávinningur hugleiðsluiðkunar:
Innra jafnvægi
Barnið lærir aðferðir til að tengjast sjálfu sér betur sem eykur innra öryggi og stuðlar að jafnvægi og vellíðan.
Sköpunarkraftur
Í hugleiðslunni fær ímyndunarafl barnsins að njóta sín og það lærir að nýta skapandi mátt hugans á jákvæðan hátt.
Sterkari sjálfsmynd
Athyglinni er beint markvisst að jákvæðum eiginleikum barnsins og við það eflast sjálfsvirðing og væntumþykja til eigin sjálfs.
Slökun
Barnið lærir aðferðir til að slaka betur á hug og líkama en það getur m.a. unnið gegn streitu og kvíða og bætt nætursvefninn.
Aukin einbeiting
Reglubundin hugleiðsluiðkun getur stóraukið einbeitinguna og gert barnið hæfara til að takast á við ytra áreiti.