Heillastjarna.is inniheldur um 200 ókeypis leiddar hugleiðslu- og sjálfstyrkingaræfingar fyrir börn og unglinga, heimili og skóla.
Efnið er afar einfalt og aðgengilegt í notkun og er markmið þess er að stuðla að góðri andlegri líðan barna og ungmenna í gegnum einfaldar æfingar sem ættu að geta hentað öllum. Vefsíðunni er ætlað að styðja fjölskyldur og skóla í því að gera hugleiðslu að daglegri iðkun. Auk vefsíðunnar eru í boði kynningar, námskeið og einkatímar fyrir skóla, félagasamtök og einstaklinga.
Njótið vel! ♡
Kennarahugleiðslustundir (ókeypis)
Heillastjarna býður upp á leiddar nethugleiðslur alla fimmtudaga kl. 15:00-15:15 en hugleiðslurnar eru sérstaklega hugsaðar fyrir kennara og annað skólastarfsfólk. Stefanía Ólafsdóttir, stofnandi Heillastjörnu, leiðir hugleiðslurnar en hún hefur starfað sem grunnskólakennari í þremur grunnskólum og þekkir því álagið sem getur fylgt starfinu vel. Hugleiðslustundirnar eru skipulagðar út frá hugsjón og þátttaka er ókeypis. Ekki er nauðsynlegt að mæta alltaf til að taka þátt og hægt verður að nálgast upptökur af hugleiðslunum eftirá. Skráðir þátttakendur fá senda áminningarpósta á fimmtudögum með Zoom hlekk til að tengjast.
Námskeið fyrir starfsfólk grunnskóla
Í tengslum við Heillastjörnuvefinn er boðið upp á námskeið fyrir kennara þar sem Stefanía Ólafsdóttir, höfundur Heillastjörnuefnisins og grunnskólakennari, mætir á staðinn (eða heldur fjarnámskeið fyrir skóla á landsbyggðinni) og fjallar um mismunandi leiðir til að nýta vefinn í skólastarfinu. Hluti námskeiðsins felst í fræðslu sem getur nýst kennurunum til að hlúa vel að sjálfum sér og sinni andlegu heilsu. Sjá nánar um fyrirkomulagið hér:
15 hugleiðsluflokkar – 200 hugleiðslur
Smellið á myndirnar til að nálgast hugleiðslurnar
Margþættur ávinningur hugleiðsluiðkunar:
Innra jafnvægi
Barnið lærir aðferðir til að tengjast sjálfu sér betur sem eykur innra öryggi og stuðlar að jafnvægi og vellíðan.
Sköpunarkraftur
Í hugleiðslunni fær ímyndunarafl barnsins að njóta sín og það lærir að nýta skapandi mátt hugans á jákvæðan hátt.
Sterkari sjálfsmynd
Athyglinni er beint markvisst að jákvæðum eiginleikum barnsins og við það eflast sjálfsvirðing og væntumþykja til eigin sjálfs.
Slökun
Barnið lærir aðferðir til að slaka betur á hug og líkama en það getur m.a. unnið gegn streitu og kvíða og bætt nætursvefninn.
Aukin einbeiting
Reglubundin hugleiðsluiðkun getur stóraukið einbeitinguna og gert barnið hæfara til að takast á við ytra áreiti.