Sjálfstyrking

Í þessum flokki eru hugleiðslur í 7 undirflokkum. Flokkarnir eru auðkenndir með mismunandi litum þar sem hver litur stendur fyrir ákveðna þætti í fari einstaklingins (hér er lauslega tekið mið af 7 orkustöðvum líkamans). Hér getur barnið valið þann lit sem því finnst eftirsóknarverðastur hverju sinni eða þá eiginleika sem væri gott að styrkja.

Rauður

Innra öryggi og jarðtenging

Lesa nánar

Ræturnar

Ræturnar – með tónlist

Ræturnar – án tónlistar

Í þessari hugleiðslu er best að barnið sitji á stól og hafi iljarnar flatar á gólfinu þar sem það styður við meiri og betri jarðtengingu.

Blómabeðið

Tillögur að umræðuefni eftir hugleiðsluna: Hvernig var að koma við moldina? Var hún hlý eða svöl viðkomu? Hvernig leit blómabeðið þitt út?

Það hentar börnum oft vel að tjá hugleiðsluupplifanir í gegnum það að teikna eða mála og því tilvalið að hvetja barnið til að teikna mynd af blómabeðinu eftir hugleiðsluna. Spilið rólega hugleiðslutónlist á meðan til að halda notalegri stemningu.

Smellið hér fyrir verkefnablað fyrir myndina:

Blómabeðið-mitt

Leirbaðið

Tillögur að umræðuefni eftir hugleiðsluna: Hvernig var heiti potturinn þinn í laginu? Hvernig var leirinn í honum á litinn? Gastu fundið lyktina af leirnum? Ef þú ættir að hanna þinn eigin heita pott, hvernig myndirðu hafa hann?
Verkefni eftir hugleiðsluna: Skapaðu notalegt andrúmsloft með því t.d. að kveikja á kerti og spila rólega tónlist. Leyfðu síðan barninu að leika sér með leir og þú getur jafnvel leirað með 🙂 Þegar við vinnum með leirinn í höndunum getur það hjálpað okkur og barninu að slaka á og dvelja í núinu.

Fjallið óhagganlega

Í þessari hugleiðslu er gott að barnið sitji á stól eða á gólfinu til að geta fundið góða jarðtengingu við stólinn eða gólfið, líkt og óhagganlegt fjall sem hvílir á jörðinni.

Tillögur að umræðuefni eftir hugleiðsluna: Hvernig leit fjallið þitt út? Var snjór toppnum? Hvernig var gróðurinn á fjallinu? Tókstu eftir einhverju fleiru á fjallinu? Hvað er að vera óhagganlegur? Hvað er innri styrkur og hvernig birtist hann í fólki?

Hafmeyjan

Í þessari hugleiðslu æfum við öndun með aðstoðar hafmeyju og mávafjaðra. Hafið kemur einnig við sögu en það hefur róandi og jarðtengjandi áhrif.
Gott er að barnið liggi á bakinu ef hægt er að koma því við. Hvetjið barnið til að blása með í hugleiðslunni (með því að blása sjálf).

Appelsínugulur

Sköpunarkraftur og gleði

Trampólínið

Trampólínið - með tónlist

Trampólínið - án tónlistar

Gulur

Sterk sjálfsmynd og frelsi

Lesa nánar

Loftbelgurinn

Loftbelgurinn – með tónlist

Loftbelgurinn – án tónlistar

Jákvæðar hugsanir

Jákvæðar hugsanir – með tónlist

Jákvæðar hugsanir – án tónlistar

Fimmblaðablómið

Fimmblaðablómið – með tónlist

Fimmblaðablómið – án tónlistar

Umræðuefni eftir hugleiðsluna:  Gastu fundið fyrir mjúka gula ljósinu í maganum? Hvernig voru blöðin fimm á blóminu þínu á litinn? Hvaða fimm jákvæðu eiginleika táknuðu blöðin?

Fimmblaðablómið – föndur

Bjóddu barninu að gera mynd af fimmblaðablóminu eftir hugleiðsluna. Hægt er að lita, mála eða gera klippimynd þar sem blöðin fimm eru klippt út úr mismunandi litum pappír og límd í kringum gula miðju blómsins. Þegar barnið er búið að gera myndina af blóminu skaltu biðja það að velja fimm jákvæða eiginleika og skrifa einn inn í hvert blað á blóminu. Tilvalið er að gera lista yfir alla þá jákvæðu eiginleika sem ykkur dettur í hug svo barnið fái hugmyndir að eiginleikum. Ef barnið á erfitt með að koma auga á jákvæðu eiginleikana í sjálfu sér er tilvalið að foreldrar/kennarar hjálpi barninu að koma auga á styrkleika sína. Spilið rólega hugleiðslutónlist á meðan til að halda notalegri stemningu.

Smelltu hér fyrir verkefnablað fyrir myndina:

Fimmblaðablómið

Speglasalurinn

Speglasalurinn – með tónlist

Speglasalurinn – án tónlistar

Speglasalurinn – föndur 

Eftir að hafa hlustað á hugleiðsluna um speglasalinn er tilvalið að ræða við barnið um sjálfsvirðingu: Hvað er sjálfsvirðing? Hvað kemur í veg fyrir að við séum með sjálfsvirðingu? Er barnið ánægt með sjálft sig? o.s.frv.
Bjóddu síðan barninu að búa til sjálfsvirðingarkórónuna sem það sá fyrir sér í hugleiðslunni og skrifa á hana alla þá jákvæðu eiginleika sem það sér í sjálfu sér.  Um að gera að vera skapandi og skreyta kórónuna með því sem til fellur, t.d. klippimyndum úr tímaritum, efnisbútum, perlum, fjöðrum o.s.frv.

Einnig er hægt að bjóða barninu að teikna/mála mynd af sér í speglasalnum í fullum skrúða, í rauðu hugrekkisstígvélunum, með bláu verndarskikkjuna, græna kærleikshjartað framan á sér, gimstein gleðinnar á enninu og sjálfsvirðingarkórónuna á höfðinu. Barnið getur síðan bætt við fleiri eiginleikum ef það vill og teiknað sinn eigin ofurhetjubúning þar sem styrkleikar eru í lykilhlutverki.

Kóngurinn sem öllu réði

Kóngurinn sem öllu réði – með tónlist

Hugleiðslan Kóngurinn sem öllu réði er aðeins frábrugðin öðrum Heillastjörnuhugleiðslum því hún er í formi nokkurs konar ævintýris þar sem við setjum okkur í spor konungs sem öllu réði og gat ekki sleppt tökunum.

Börn (og raunar fullorðnir líka) sem hafa ekki mjög sterka sjálfsmynd hafa oft ríka þörf fyrir að stýra umhverfinu. Stjórnsemi getur sprottið upp frá innra óöryggi þar sem barnið vill hafa allt eftir sínum geðþótta og er þá jafnvel ómeðvitað að reyna að skapa innra öryggi. Slípt skapar hins vegar innri spennu og reiði sem veldur barninu vanlíðan og hefur neikvæð áhrif á samskipti þess við aðra. Í sögunni lærir kóngurinn að sleppa stjórnsemi og upplifa frelsið sem felst í því að taka lífinu eins og það er og taka því óvænta opnum örmum. Skilaboðin eru þau að við getum í raun aldrei haft stjórn á umhverfinu en við getum hins vegar alltaf ríkt yfir eigin huga.

Kóngurinn sem öllu réði – æfing

1. Gerið lista yfir 7 jákvæðar hugsanir(setningar) sem lýsa líðan sem barninu finnst eftirsóknarverð.

Dæmi um hugsanir:
Ég er hamingjusamur/hamingjusöm
Ég er jákvæð/ur
Ég er þakklát/ur fyrir lífið mitt
Ég er friðsæl/l

Ég er örugg/ur
Ég er hugrakkur/hugrökk
Ég hef mikinn innri styrk

Ég er góður vinur
o.s.frv.

2. Skrifið hugsanirnar á miða sem barnið getur skreytt ef það vill og bjóðið barninu að draga einn miða á dag.

3. Æfingin felst síðan í því að staldra við 1-3 sinnum yfir daginn, loka augunum og reyna að halda bara þessari einu hugsun í huganum í eina mínútu (fínt að stilla símann og láta hann hringja þegar mínútan er liðin). Flestum börnum finnst þetta skemmtileg áskorun og tilvalið að fullorðna fólkið taki þátt í þessari tilraun líka, gerir því ekki síður gott 🙂

Það getur haft gífurlega jákvæð áhrif á líðanina að hugsa meðvitað jákvæðar hugsanir sem þessar  nokkrum sinnum yfir daginn og getur hjálpað barninu að skapa sterka sjálfsmynd.

Grænn

Kærleikur og þakklæti

Hjartablómið

Hjartablómið - með tónlist

Hjartablómið - án tónlistar

Blár

Tjáning og heiðarleiki

Bláa eyjan

Bláa eyjan - með tónlist

Bláa eyjan - án tónlistar

Fjólublár

Sjálfsþekking og traust

Fjólubláa fiðrildið

Fjólubláa fiðrildið - með tónlist

Fjólubláa fiðrildið - án tónlistar

Hvítur

Víðsýni og tenging

Lótusblómið

Lótusblómið - með tónlist

Lótusblómið - án tónlistar